Langt síðan síðast!
Margt hefur á daga mína drifið síðan ég henti inn síðustu færslu....og ef við rennum svona yfir aðalatriðin.....
1.febrúar: Nemendamót Verzlunarskólans var haldið og byrjaði dagurinn klukkan 8 heima hjá Daníeli og hittumst við allur bekkurinn þar og borðuðum saman dýrindis bakarís bakkelsi. Eftir það þurfti ég að keyra með Helga J. nánast upp í sveit eða lengst upp í Grafarvog þar sem hann GLEYMDI miðanum á leikritið. Þaðan lá svo leið okkar niður í Austurbæ þar sem söngleikurinn Sextán var frumsýndur og verð ég að segja að hann hafi nú bara verið hin fínasta skemmtun. Eftir það skellti ég mér nú bara aðeins í tónastöðina og keypti mér gítarkassa undir nýja gítarinn, hentist með það heim og svo hitti ég megnið af bekknum á reykjavík Pizza Company....
Eftir það héldum við af stað í Kramhúsið þar sem við fórum í Crump dans tíma...og segi ég nú bara ekki annað en að þetta var eitt það fáránlegasta sem ég hef gert(en ágætisskemtun þó) við vorum þarna í klukkutíma að sparka og kíla útí loftið(dans?...tja veit ekki)....þaðan ætlaði ég að hendast upp í Grafarvog með Helga R. og drífa mig heim að gera mig til fyrir kvöldið...en annað kom á daginn....haldiði að það hafi ekki sprungið á drossíunni sem hún Tóta E lánaði mér(Dihatsu Charade..eðalvagn;)) og þurfti því Helgi(sem er sérfræðingur um bíla og viðgerðir á þeim) að skipta um dekk...gekk það vel og reddaðist allt saman... lítill tími til stefnu og hentist ég í sturtu, í jakkafötinn og af stað uppá Hótel Sögu þar sem við snæddum dýrindis kræsingar og þar sem undirritaður er vel mælskur var hann beðinn um að halda tölu yfir samkomunni og leysti það með sóma...eftir þessar kræsingar lá leið mín og Helga R. til Siggu Önnu systir Ólafs að ná í þann síðarnefnda..þaðan að sækja Helga B.(hvað eru eiginlega margir Helgar í þessari færslu?) og loks í fyrirpartý til Valla... glæsilegt boð hjá honum og er nú komið að mestu skemmtun fyrr og síðar sem ég hef upplifað...NEMÓ ballið....tær snilld og þarf ekki fleiri orðum um það að fletta. Síðan tók við hálfgert leigubílastand á mér þar sem ég hentist í vesturbæinn, kópavog, garðabæ og hafnarfjörð með samnemendur mína og einnig 4 grindvíkinga. Klukkan hálf 5 kom ég heim og steinrotaðist..
6.febrúar....
Þann dag fæddist gullfallegt stúlkubarn og það sem meira er þá er móðir þess eldri systir mín Guðrún Sædís:P...gaman af því:P...
Síðan í gær vorum við í 2. og mfl. Grindavíkur að bóna bíla og mætti ég klukkan 9 um morgunninn upp í gula hús, þaðan niður í veiðafæraþj. að bóna...og var ég þar þangað til uppúr 19.(að undanskildum 15 min) fór heim í sturtu og kíkti svo um 20 aftur upp í veiðafæraþj. og voru menn enn að:S....þaðan upp í gula og svo á Kaffi Grindavík og skemmtum við okkur konunglega.....
Held ég að nóg sé komið af skrifum í dag og kveð ég að sinni.
Jón Ágúst Eyjólfsson.